Námskeið í innri úttektum 17. og 18. janúar

Námskeið í innri úttektum 17. og 18. janúar

Dagana 17.  og 18. janúar heldur iCert námskeið í innri úttektum. Með lögfestingu jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 er fyrirtækjum og stofnunum gert að hlíta ákvæðum staðalsins. Í því fellst m.a. að framkvæma innri úttektir með reglubundnu millibili. Til þess að framkvæma innri úttektir er nauðsynlegt að tileinka sér aðferðafræði innri úttekta með hliðsjón af staðlinum ÍST EN ISO 19011:2018.
iCert heldur námskeið í samvinnu við Dokkuna. Á námskeiði um innri úttektir er farið yfir úttektarframkvæmd stjórnunarkerfa frá a – ö eða frá því stjórnunarkerfi er fyrst útfært og framkvæmd endurtekinna úttekta á virkni þess. Námskeiðið eru tveir dagar þar sem fyrri dagurinn fer að mestu í fyrirlestra og sá síðari í verklega framkvæmd úttekta. Áhersla er ekki lögð á eitt stjórnunarkerfi framar öðru heldur er markmið námskeiðsins að veita þátttakendum skilning og þekkingu á framkvæmd innri úttekta óháð stjórnunarkerfi. Með þekkingu sem þátttakendur fá á námskeiðinu ættu þeir að geta tekið út hvaða stjórnunarkerfi sem er að því gefnu að þekking á viðkomandi stjórnunarkerfi sé til staðar.

Hægt er að skrá þátttöku á námskeið hér.