FAQ
Hver er kostnaðurinn við vottun?
Faggiltar vottunarstofur lúta ströngum kröfum m.a. um hvernig vottun er framkvæmd og mati á úttektartíma. Hluti af þeim kröfum felst í að iCert þarf, áður en úttektartími er áætlaður, að afla upplýsinga um stærð fyrirtækis, staðsetningu þess, umfang starfsemi, fjölda starfsmanna, fjölda starfa o.fl. Þegar það liggur fyrir er unnt að áætla kostnað og tíma sem úttektir munu taka. Hafðu samband við iCert í dag til að fá frekari upplýsingar.
Afhverju ættu fyrirtæki og stofnanir að hljóta vottun?
Annars vegar vegna þeirrar kröfu laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, með síðari breytingum, um að öll fyrirtæki með 25 starfsmenn eða fleiri skuli hljóta vottun á jafnlaunakerfi sem það hefur innleitt. Hins vegar felur vottun faggiltrar vottunarstofu í sér staðfestingu á skuldbindingu um hlítni við kröfur þeirra stjórnunarkerfisstaðla sem fyrirtæki eða stofnun hefur innleitt og getur sýnt viðskiptavinum sínum, hagsmunaaðilaum og stjórnvöldum fram á hana.
Hvernig nær fyrirtækið mitt vottun á stjórnkerfi?
Vottunarferlið felst í eftirfarandi skrefum:
- Gatagreining: Veitir mat á stöðu mála áður en farið er í vottunaraðgerðir og nauðsynlegar úttektir.
- Forúttekt: Mat á skjölum stjórnunarkerfisins og hvort fyrirtæki er tilbúið til að fara í vottunarúttekt.
- Vottunarúttekt: Mat á árangri stjórnunarkerfis í framkvæmd og hvernig því er viðhaldið með hliðsjón af stöðugum umbótum.
- Vottunarákvörðun: Ákvörðun iCert um hvort stjórnunarkerfið hlíti kröfum viðkomandi stjórnunarkerfisstaðals að teknu tilliti til mögulegra aðgerða sem nauðsynlegar voru eftir vottunarúttekt.
Stjórnunarkerfið þarf að hafa verið útfært og innleitt í starfsemi fyrirtækisins áður en til vottunar kemur. Nánar má lesa um vottunarferilinn hér.
Hversu lengi gildir vottun?
Vottun gildir í þrjú ár eftir útgáfu en eftirlitsúttektir eru framkvæmdar einu sinni á ári til að tryggja samræmi stjórnunarkerfisins við kröfur. Að þremur árum liðnum fer endurvottunarúttekt fram.
Hvernig hjálpar vottun fyrirtækinu?
Stjórnunarkerfi eru í eðli sínu góð leið til þess að auka skilvirkni og árangur fyrirtækja. Vottun er í flestum tilvikum valkvæð ráðstöfun fyrirtækja til þess að sýna viðskiptavinum, hagsmunaaðilum, stjórnvöldum að fyrirtækið fari að kröfum viðeigandi stjórnunarkerfisstaðla og að það hafi verið staðfest af hlutlausum aðila. Það getur hagnast þeim í að afla nýrra viðskiptatækifæra, bæta orðspor sitt og samskipti við hagsmunaaðila og stjórnvöld.
Hvað tekur langar tíma að innleiða stjórnunarkerfi og hljóta vottun?
Ef vel er staðið að málum þá ætti að vera raunhæft að útfæra, innleiða og koma í framkvæmd stjórnunarkerfi á 3-12 mánuðum. Það er hins vegar háð ýmsum þáttum, s.s. stærðar fyrirtækis, umfangs starfsemi þess, úrræðum í ferlinu o.fl. Eftirfarandi atriði skipta höfuðmáli ef vel á til að takast:
- Skuldbinding yfirstjórnar sé til staðar
- Núverandi staða ferla og framkvæmdar
- Tegund stjórnunarkerfis
- Hvort stjórnunarkerfi sé nú þegar til staðar
- Hvort og þá hvernig kerfið er skjalað
- Úrræði fyrirtækisins til innleiðingarinnar