Friðhelgi

Friðhelgi

iCert sf. 

Heimasíða iCert er: http://www.icert.is.

Vefurinn og þær upplýsingar sem hann tekur á móti eru vistaðar á Íslandi hjá 1984 ehf.

Persónuupplýsingar

Þegar þú notar vef iCert sf. verða til upplýsingar um heimsóknina. iCert sf. miðlar þeim ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.

Notkun á vefkökum

Vefkökur (e. cookies) eru notaðar á vefnum í tvennum tilgangi, til að telja heimsóknir á vefinn og til þess að bæta vefupplifun notenda.

iCert sf. notar vefkökur sparlega og með ábyrgum hætti. Notendur vefsins geta stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af vefkökum eða hafni þeim með öllu.

iCert sf. notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfi. Þessar upplýsingar eru nýttar til endurbóta á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engar frekari upplýsingar er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

SSL skilríki

Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

Hafa samband

Á síðum vefsins er hægt að senda beiðnir um tilboð í vottun, senda kvartanir og hafa samband um annað tilfallandi. Nauðsynlegt er að gefa upp netfang svo unnt sé að hafa samband til baka og óska eftir frekari upplýsingum. Þessar skráningar afritast í tölvupóst sem er varðveittur í tölvupósti sem er hýstur hjá Microsoft. Skráningar kunna að vera að vera afritaðar í skjalakerfi (málaskrá) iCert sf. sem einnig er hýst hjá Microsoft. Tekin eru afrit af tölvupósti og skjalakerfi daglega af Öruggri afritun ehf.

Tenglar í aðra vefi

Á vef iCert sf. er stundum vísað á vefi stofnana, félagasamtaka og fyrirtækja. Reglur iCert sf. um öryggi notenda gilda ekki á vefjum utan hans. iCert sf. ber ekki ábyrgð á efnisinnihaldi eða áreiðanleika slíkra vefja. Vísunin þýðir heldur ekki að iCert sf. styðji eða aðhyllist nokkuð sem þar kemur fram.

Fyrirvari

iCert sf. leitast við að hafa upplýsingar á vefnum réttar og í samræmi við nýjustu stöðu mála en ekki er ávallt hægt að ábyrgjast að svo sé. Þetta á einnig við um tilvísanir og tengla í efni utan vefsins.