Allir viðskiptavinir iCert hafa aðgang að launagreiningarverkfæri þannig að þeir geti framkvæmt launagreiningar með auðveldum hætti og þegar þeim hentar.
Launagreiningarverkfæri iCert hefur nú verið uppfært vegna óska viðskiptavina iCert. Í nýrri útgáfu er hægt að skilgreina allt að 200 störf og gera greiningu fyrir allt að 4.000 starfsmenn. Jafnlaunaviðmið eru nú allt að 13 og persónubundnir þættir allt að 4 og hentar þannig sérstaklega fyrir starfsmat sveitarfélaga.
Nálgast má nýja útgáfu á innri vef iCert.